Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita í leiðtogaprófkjöri sem nú stendur yfir. Sitjandi oddviti flokksins, Margrét Sanders, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram.Þrír eru í framboði: Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálmur Árnason.Ásgeir Elvar Garðarsson er framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis. Hann er nýr á vettvangi stjórnmála og er menntaður sem viðskiptafræðingur. Hann boðar nýja og breytta nálgun á stjórnmálin í Reykjanesbæ.Unnar Stefán Sigurðsson er skólastjóri Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Hann er menntaður rafirki, lögreglumaður og er með B.A.-próf í guð- og miðaldafræði.Unnar hefur víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum, bæði úr atvinnulífi og félagsstarfi, en hann sat meðal annars í stjórn KSÍ frá 2020 til 2024. Hann segir markmið sitt að leiða öflug