Norskir fjölmiðlar hafa birt fjöldann allan af fréttum í dag um samskipti Mette-Marit krónprinsessu og barnaníðingsins Jeffreys Epsteins. Í gögnum um Epstein sem birt voru í gær bregður Mette-Marit fyrir í hundruðum skipta. Þau áttu í reglulegum samskiptum um tölvupóst um árabil og hittust nokkrum sinnum eftir að hann var fyrst sakfelldur fyrir kynferðisbrot. Þau hittust meðal annars í janúar 2013 þegar prinsessan fékk hús Epteins í Fóría lánað í fjóra daga.Í einum tölvupósti prinsessunnar frá október 2011 viðurkennir hún fyrir Epstein að hafa gúgglað hann. „Ég gúgglaði þig eftir síðasta tölvupóst. Sammála, lítur ekki allt of vel út,“ skrifar prinsessan. Norskir fjölmiðlar hafa óskað eftir frekara samhengi póstsins frá norsku hirðinni. Hann var sendur eftir að Epstein var fyrst sakfelldur