Fyrrverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkurborg segist hafa þurft að sitja undir fúkyrðaflaumi frá lýtaskurðlækni á meðan hún lá sjálf undir hnífnum fyrir rúmlega viku síðan. Maðurinn hafi ausið yfir hana „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ á meðan hann „dundaði“ sér við að skera augnlok hennar.