Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara á Íslandi hefur mælst meira en meðal Íslendinga undanfarin ár.Í september í fyrra mældist atvinnuleysi fólks með erlent ríkisfang lægst 7,3% en í desember mældist það 10,2%.Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um íslenskan vinnumarkað.Hagvöxtur undanfarinna ára hefur verið drifinn áfram af innfluttu vinnuafli en með viðsnúningi í hagkerfinu hefur hægt á fjölgun erlends starfsfólks. MIKIL FJÖLGUN FÓLKS AF ERLENDUM UPPRUNA Á ÍSLENSKUM VINNUMARKAÐI Fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mikið á íslenskum vinnumarkaði undanfarin ár. Í fyrra var hlutfallið um 25% af öllum starfandi.Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara mældist mest 10,2% í desember í fyrra. Til samanburðar var atvinnuleysi Íslendinga minnst 2,0% en fór hæst upp í 4,