Námuslys eru tíð í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.epaBjörgunarsveitir í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hafa fundið lík um 200 námumanna sem fórust í námuslysi í bænum Rubaya í austurhluta landsins. Náman féll saman á miðvikudag eftir úrhellisrigningu.Konur og börn sem störfuðu í námunni eru meðal hinna látnu. Í námunni eru grafin upp steinefni sem notuð eru í rafbúnað, til dæmis snjallsíma.20 lifðu slysið af og voru flutt á sjúkrahús til aðhlynningar. Slys af þessu tagi eru tíð í landinu og iðulega banvæn.