Fyrsta þorrablót Grindvíkinga frá rýmingu bæjarins 10. nóvember 2023 verður haldið í Íþróttahúsinu í Grindavík í kvöld. Uppselt er á viðburðinn og segir skipuleggjandi miðasölu hafa farið fram úr björtustu vonum.„Við erum alveg svakalega vel stemmd fyrir þessu. Það hefur gengið ofboðslega vel allur undirbúningur og mér vitanlega er allt að verða klárt. En það er búið að vera þrotlaus vinna síðustu að græja allt sem þarf. Þannig að það eru bara allir kátir,“ segir Sigurður Þyrill Ingvason, skipuleggjandi og nefndarmaður Þorrablótsnefndar Grindavíkur.Von er á um þúsund gestum og segir Sigurður miðasölu langt umfram væntingar.„Við renndum blint í sjóinn með miðasöluna. Hún fór fram úr okkar björtustu vonum. Það er uppselt í húsið.“ STÓRT SKREF Í ÁTT AÐ ENDURUPPBYGGINGU Sigurður segir einst