Björgunarsveitir voru rukkaðar um kílómetragjald af ökutækjum sínum með sama hætti og aðrir bílaeigendur um þessi mánaðamót. Þær eiga að vera undanþegnar greiðslu gjaldsins.Kílómetragjald var innleitt um áramót. Það nær til allra ökutækja, óháð orkugjafa og er tæplega sjö krónur fyrir hvern ekinn kílómetra bíla og jeppa undir þremur og hálfu tonni. Gjaldið fer svo stighækkandi eftir því sem ökutækin eru þyngri. Nokkrar undanþágur eru gerðar á álagningu gjaldsins – ökutæki sem aðeins eru notuð af björgunarsveitum þurfa ekki að greiða það.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að tæknilegt útfærsluatriði hafi ráðið því að reikningar bárust frá Skattinum. Í ökutækjaskrá voru fleiri flokkar en einn fyrir skráningu björgunartækja og því ekki hægt að nota þá skrá. KÖRFURNA