Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frostlaust samfellt í þrettán daga í Reykjavík

Veðrið á höfuðborgarsvæðinu í janúar þykir hafa verið sérlega gott og ófærð hefur ekki spillt fyrir samgöngum. Síðasti dagur mánaðarins er í dag. Veðurstofan gefur út mánaðaryfirlit um tíðarfarið eftir helgi.Fyrri hluta janúar kom kuldakast og var meðalhiti í Reykjavík rúmlega eins stigs frost, sem var undir meðallagi. Óvenjulítil úrkoma hefur verið í borginni og sólskinsstundir óvenjumargar.Veðurstofan mælir hita á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Hiti er jafnan hærri á mæli við hús Veðurstofunnar við Bústaðaveg en á mælum fjær sjó. Samkvæmt upplýsingum veðurfræðings á vakt í morgun þá hefur hiti verið yfir frostmarki á mælinum við Veðurstofuna síðustu þrettán daga eða frá 17. janúar. Á því er ein lítil undantekning því að snemma í gærmorgun mældist 0,1 stigs frost í tíu til tuttugu m
Frostlaust samfellt í þrettán daga í Reykjavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta