Katla Ársælsdóttir skrifar:Mergur er nýtt íslenskt tónlistar- og sviðsverk sem frumsýnt var í Tjarnarbíói síðustu helgi. Verkið er eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur en hún er einnig leikari þess. Hún fær töluvert marga með sér í lið, bæði á sviði og bakvið tjöldin. Í aðstoð við útsetningar, texta og lagasmíð eru þau Anna Róshildur, sem einnig er dramatúrg verksins, Stefán Nordal og Steinunn Sigþrúðardóttir Jónsdóttir en Steinunn sá einnig um hönnun ásamt Katrínu Hersisdóttur. Cristina Agueda sá um ljós og hljóð var í höndum Gríms Einarssonar. Hekla Kollmar, Ólafur Benedikt Indriðason og Svava Þorsteinsdóttir sáu um leikmynd og búningar eru eftir Huldu Kristínu Hauksdóttur. Flytjendur verksins eru einnig töluvert margir eða 28 í heildina. Þeir mynda kór sem syngur lög með heldur óhefðbundnu