Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kostnaður við nýjan Kársnesskóla fór tæpa tvo milljarða fram úr áætlun

Uppbygging nýs barnaskóla Kársness hefur verið þrautaganga. Fyrir um níu árum var ákveðið að rýma gamla skólahús Kársnesskóla við Skólagerði eftir að rakaskemmdir og mygla fundust. Rúmlega ári síðar hófst niðurrif á húsinu og boðin var út hönnun á nýju húsnæði á sömu lóð. Árið 2021 var tilboði ítalska fyrirtækisins Rizzani de Eccher upp á 3,2 milljarða tekið. Upphafleg verklok áttu að vera vorið 2023.Það var hins vegar í maí 2023 sem Kópavogsbær rifti samningnum við ítalska verktakann vegna galla á verkinu; raki fannst í útveggjaeiningum og mygla í timbri innandyra, svo eitthvað sé nefnt.Riftunin fór fyrir gerðardóm en dómurinn staðfesti að hún hefði verið lögleg – og þá var verkið hálfnað. Kópavogsbær segir í dómnum að það hafi tekið sex til sjö mánuði að endurskipuleggja framkvæmdina, en
Kostnaður við nýjan Kársnesskóla fór tæpa tvo milljarða fram úr áætlun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta