Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hlaut stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af hópi ungmenna sem veittust að manni og réðust á hann. „Árásarþoli reyndist hafa hlotið stórfellt líkamstjón af árásinni og var eitt ungmennið handsamað,“ segir í morgunpósti lögreglu þar sem farið er yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Lögregluþjónar á stöð 2 sinntu þessu útkalli en hún sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Málið er til rannsóknar og unnið í samvinnu við Barnavernd. Lögreglunni sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti barst einnig tilkynning um líkamsárás þar sem gerendur og þolandi voru ungmenni. Alls rötuðu 82 mál inn á borð lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður í umferðinni, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.Þá var maður kærður fyrir
Hlaut stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta