„Áratugahefð er fyrir því að trillukarlar veiði síld í beitu. Að sjálfsögðu hefur ekkert verið amast við þessum veiðum enda magnið í þeim mæli að engu skiptir. Það kom því trillukörlum á Ströndum í opna skjöldu þegar eftirlitsaðili Fiskistofu sá ástæðu til að hafa afskipti af veiðunum í sl. viku. Hann benti á að samkvæmt reglugerð væru síldveiðar bannaðar til 1. september. Vissulega eru reglugerðarákvæði til að fara eftir þeim, en stundum hafa menn ekki hugmyndaflug til að sjá allt fyrir. Til dæmis að eftirlitsmenn Fiskistofu láti það hvarfla að sér að hafa afskipti af þessum veiðum.“