18.155 Litháar fluttu til baka til Litháen á síðasta ári. Flestir höfðu áður verið búsettir í Bretlandi, Noregi, Þýskalandi, Írlandi og Hollandi. Þetta er 6. árið í röð sem fleiri Litháar flytja til landsins en frá því, en 9.486 Litháar fluttu frá landinu á síðasta ári. Það er minnsti fjöldi sem flutt hefur frá landinu á einu ári frá því að Litháen endurheimti sjálfstæði sitt frá Sovétríkjunum árið 1990.Utanríkisráðherra Litháen, Kęstutis Budrys, sagði þessa þróun vera vísbendingu um að tengsl Litháa við heimaland sitt væru að styrkjast og merki um aukið traust til stjórnvalda. „Æ fleiri Litháar kjósa að byggja upp framtíð sína hér vegna þess að þau sjá hér tækifæri til að ná árangri í starfi, hér eru örugg samfélög fyrir fjölskyldur og hér eru fjölbreytt tækifæri til nýsköpunar og viðskip