Eldur kviknaði í vöruflutningabíl í Bröttubrekku á sjöunda tímanum í kvöld. Lögreglan á Vesturlandi og slökkvilið úr Borgarbyggð fengu útkall kl. 18:36. Vegurinn var lokaður á meðan verið var að ráða niðurlögum eldsins og vettvangsvinna stóð yfir.Altjón varð á bílnum en engin hætta var á ferðum, hvorki fyrir bílstjórann né aðra vegfarendur. Flutningabíllinn var á suðurleið og lestaður með ferskum laxi.