Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrjár milljónir nýrra skjala birt í Epstein málinu

Bandaríska dómsmálaráðuneytið birti þrjár milljónir nýrra skjala í Epstein-málinu í gær. Um gríðarlegt magn gagna er að ræða en auk skjalanna eru 180.000 ljósmyndir og 2.000 myndbönd sem hafa ekki komið áður fyrir sjónir almennings. Þar á meðal eru ljósmyndir úr klefa Jeffrey Epstein, eftir að hann fannst látinn.Todd Blanche vararíkissaksóknari sagði litlar líkur á því að einhverjar upplýsingar í skjölunum myndu leiða til frekari málaferla. Þolendur Epstein hafa gagnrýnt birtingu skjalanna. Í tilkynningu frá hópi þolenda segir að nöfn þolenda komi fram í þessum nýjustu skjölum sem birt voru – en nöfn gerenda séu enn hulin og því njóti þeir áfram verndar.Dómsmálaráðuneytið úrskurðaði að öll gögnin í Epstein-málinu yrðu birt 19. desember síðastliðinn. Blanche sagði að seinkunin á birtingu sk
Þrjár milljónir nýrra skjala birt í Epstein málinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta