Fjölmiðlamaðurinn Don Lemon, sem var áður fréttaþulur CNN, var handtekinn í gær. Hann er borinn þeim sökum að hafa brotið alríkislög í Bandaríkjunum þegar hann var viðstaddur mótmæli í kirkju í Minnesota fyrr í mánuðinum.Dómsmálaráðuneytið ákærði Lemon og þrjá aðra fyrir refsiverð brot gegn borgaralegum réttindum (e. civil rights crimes). Ráðuneytið segir fjórmenningana hafa truflað frelsi til trúariðkunar í bænahúsi. „ÞAÐ ER HIÐ RAUNVERULEGA DÆMI UM RANGLÆTI Í ÞESSU MÁLI“ Abbe Lowell, verjandi Lemons, segir hann hafa verið handtekinn af alríkisfulltrúum í Los Angeles í gærkvöldi þegar hann var að flytja fréttir frá Grammy-verðlaunahátíðinni.„Don hefur verið fréttamaður í 30 ár og stjórnarskrárvarin vinna hans í Minneapolis var ekkert ólík því sem hann hefur áður gert,“ er haft eftir Lo