Bandaríska leikkonan Catherine O´Hara er látin 71 árs að aldri.Í tilkynningu frá umboðsskrifstofu leikkonunnar kemur fram að hún hafi látist á heimili sínu í Los Angeles eftir skammvinn veikindi.O´Hara á farsælan feril að baki, bæði í kvikmyndum og sjónvarpi, en eflaust er hún hvað þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndinni Home alone sem kom út í byrjun tíunda áratugarins.Þar lék hún móður aðalsöguhetjunnar og grallarans, Kevin McCallister, sem Macaulay Culkin lék svo eftirminnilega. Þá lék hún einnig í költ-kvikmyndinni Beetlejuice árið 1988, í leikstjórn Tim Burton.O´Hara hefur hlotið fjölda verðlauna á farsælum ferli sínum, þar á meðal Golden Globe og Emmy verðlaun fyrir túlkun sína á hinni litríku leikkonu Moiru Rose í sjónvarpsþáttunum margverðlaunuðu Schitt´s Creek. Hún var einnig tiln