Karlmaður sem hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sambýliskonu sinnar hefur játað sök að mestu leyti og viðurkennt bótaskyldu. Þetta staðfestir Elimar Hauksson, verjandi mannsins. Fyrirtaka fór fram í málinu í gær.„Umbjóðandi minn hefur játað sök að mestu leyti og hefur gert það frá fyrstu skýrslutöku. Þetta snýst fyrst og fremst um tæknilega útfærslu á orðalagi ákæru. Hann viðurkennir bótaskyldu,“ segir Elimar.„Í ljósi þess að þetta er lokað þinghald get ég ekki tjáð mig frekar um málið eða málavexti þess.“Vísir hefur eftir Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara að það sem standi helst út af sé ágreiningur um fjölda skipa sem maðurinn á að hafa brotið gegn stúlkunni.Brotin sem maðurinn er ákærður fyrir framdi hann frá vori 2023 fram að hausti 2025 á