Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýnir lagabreytingarfrumvarp forsætisráðherra sem felur í sér að skipunarvald forsetaritara verði í höndum forsætisráðherra. Hann segir að frumvarpið myndi fela í sér alvarlega aðför að sjálfstæðri stöðu forseta Íslands. Forsætisráðherra hafi hingað til aldrei haft vald til að velja forsetaritara, æðsta embættismann forsetaembættisins.Frumvarpið felur í sér breytingar á skipun forsetaritara og lækkun launa handhafa forsetavalds niður í samanlagt 300 þúsund krónur á ári. Þar er einnig fjallað um heimild til ráðningar aðstoðarmanns forseta. Í fyrstu grein frumvarpsins eru gerðar tillögur til breytinga á 5. grein laga. Fyrri hluti hennar er svohljóðandi: > Forsetaritari stýrir skrifstofu embættisins, ræður annað starfslið, er ábyrgur f