Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segir að einfalda verði regluverk um útlendingamál í Danmörku svo hægt verði að vísa úr landi erlendum ríkisborgurum sem framið hafa alvarleg brot.Hún segir þetta vera inntakið í breytingum stjórnvalda á brottvísunarheimildum sem kynntar voru á sameiginlegum blaðamannafundi Mette Frederiksen, Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra, Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra og Rasmus Stoklund, ráðherra innflytjendamála og samþættingar í dag.Frederiksen segir að útlendingar sem fremja alvarlega glæpi, á borð við alvarlega líkamsárás eða nauðgun, eigi ekki heima í Danmörku. RÍKISSTJÓRNIN KYNNTI AÐGERÐIR SÍNAR Á BLAÐAMANNAFUNDI Á blaðamannafundinum í dag kynnti ríkisstjórnir aðgerðir sínar.Ríkisstjórnin leggur til að sá eða sú sem dæmdur er til ha