Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vitarnir enn mikilvægir og Sæbrautarvitinn afturför í öryggi

Formaður fagráðs um siglingamál segir dæmi um að öryggi sjófarenda hafi verið skert með framkvæmdum og vonar að nýtt frumvarp fyrirbyggi að slíkt endurtaki sig. Vitar séu enn mikilvægir fyrir siglingaöryggi.Í nýju frumvarpi um siglingaöryggi í samráðsgátt stendur til að helga svæði siglingum og tryggja að framkvæmdir dragi ekki úr siglingaöryggi. Dæmi eru um að nýbyggingar hafi skyggt á vita og þá hefur verið óljóst hvernig haga skuli sambúð laxeldis og siglinga. VITAR AÐEINS NOTAÐIR EF ÖNNUR TÆKI BREGÐAST Fjórðungssamband Vestfirðinga sagði í umsögn um áformin að sumir vitar hefðu verið settir upp fyrir löngu. Gervihnattaleiðsögn hafi fleygt fram og vitar séu því sumir aðeins neyðaröryggi.„Hluti vita innan strandsvæða í dag voru settir upp fyrir áratugum síðan og þjónuðu þeirra tíma at
Vitarnir enn mikilvægir og Sæbrautarvitinn afturför í öryggi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta