Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fleiri rauðar viðvaranir í fyrra en nokkru sinni fyrr

Veðurstofan gaf út fleiri rauðar viðvaranir vegna ofsaveðurs á tveimur dögum í fyrra en samanlagt næstu sjö ár á undan.Sunnan illviðri gekk yfir landið 5. og 6. febrúar og gaf Veðurstofan út nítján rauðar viðvaranir þessa daga. Fram að því hafði hún gefið út sextán slíkar viðvaranir. Þær fyrstu litu dagsins ljóst 2019, á öðru ári sem viðvaranakerfið var í gildi, og ári seinna urðu þær fjórar. Þar til í fyrra höfðu flestar rauðar viðvaranir verið gefnar út 2022 þegar þær voru tíu talsins.Þetta kemur fram í yfirliti á vef Veðurstofunnar.Alls voru gefnar út 327 viðvaranir vegna veðurs á síðasta ári. Langflestar voru þær gular, 255 talsins, og höfðu þó ekki verið gefnar út færri slíkar viðvaranir síðan 2021. Appelsínugulu viðvaranirnar urðu 53 talsins og hafa aðeins verið gefnar út fleiri slík
Fleiri rauðar viðvaranir í fyrra en nokkru sinni fyrr

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta