Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

28 þingmenn flytja tillögu um stuðning við sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga

Nærri helmingur þingmanna stendur að tillögu til þingsályktunar um að styðja rétt grænlensku þjóðarinnar til sjálfsákvörðunar. Tillagan var lögð fram á Alþingi í gær og setja 28 þingmenn nafn sitt við hana. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður.Í tillögunni segir að Alþingi álykti að styðja rétt grænlensku þjóðarinnar til sjálfsákvörðunar og að Alþingi telji að fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða eigi alltaf að virða. „ Alþingi álítur að Grænlendingar eigi að ráða framtíð sinni sjálfir.“Hvorki er vísað til Bandaríkjanna með nafni né í ásælni Bandaríkjaforseta í að komast yfir Grænland í tillögunni. Þó má ráða af texta tillögunnar og greinargerðarinnar að það sé kveikjan að þingsályktunartillögunni.„Fullveldi og sjálfsákvörðunarréttur þjóða eru
28 þingmenn flytja tillögu um stuðning við sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta