Réttarhöld standa yfir þessa dagana í máli sem sjö heimsþekktar persónur hafa höfðað gegn Associated Newspapers, útgefanda götublaðsins Daily Mail. Ákæruefni snýr að ólöglegri upplýsingaöflun á kerfisbundinn hátt í þeim tilgangi að afla frétta. Meðal annars á blaðið að hafa hlerað símtöl, hakkað sig inn í síma og tölvukerfi og komist yfir persónuleg gögn eins og sjúkraskrár.Fræga fólkið sem höfðar þetta mál eru eru Elton John tónlistarmaður og maðurinn hans David Furnish, Harry Bretaprins, leikkonurnar Elizabeth Hurley og Sadie Frost, Simon Hughes fyrrverandi þingmaður Frjálslyndra demókrata og Doreen Lawrence, móðir Stephen Lawrence sem var drepinn fyrir 30 árum vegna kynþáttar síns. FYRRI MÁLSÓKNIR GENGU VEL HJÁ HARRY Þetta er þriðja málið sem Harry Bretaprins höfðar gegn breskum blað