Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Jarðskjálfti að stærðinni 3,1 vest-suðvestur af Reykjanestá

Veðurstofa ÍslandsJarðskjálfti að stærðinni 3,1 varð kl. 19:37 í kvöld, 30 km vest-suðvestur af Reykjanestá. Alls mældust um 20 skjálftar á þessu svæði í kvöld en dregið hefur úr skjálftahrinunni, samkvæmt Elísabetu Pálmadóttur, náttúruvársérfræðingi á Veðurstofu Íslands.Áður hafa mælst kröftugar hrinur á þessu svæði, síðast í maí 2025, þegar yfir 500 skjálftar mældust í þeirri hrinu. Stærsti skjálftinn var um 5 að stærð og fannst vel á suðvesturhelmingi landsins.
Jarðskjálfti að stærðinni 3,1 vest-suðvestur af Reykjanestá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta