Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða eftir skatta árið 2025 en það er hálfs milljarðs aukning frá árinu áður. Arðsemi eiginfjár var 11,6% samanborið við 12,1% árið áður. Þá vill bankaráð greiða um 19 milljarða króna, sem nemur um 50% af hagnaði ársins, í arð. Bankaráð er einnig með til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfundinn.Þetta kemur fram í uppgjöri Landsbankans. Þar segir að heildarskattgreiðslur bankans hafi numið 19 milljörðum króna.Hreinar vaxtatekjur bankans námu 62,1 milljarði króna og hreinar þjónustutekjur 12,6 milljörðum. Kostnaðarhlutfall bankans hækkar lítillega milli ára og var 34,3%.Hagnaður á fjórða ársfjórðungi ársins 2025 nam 8,6 milljörðum króna og arðsemi eiginfjár var 10,1%.Útlán jukust um 4,3% eða 76,9 milljarða króna og innlán um 1,7% eða 20,