Demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings höfnuðu fjárlagapakka með sex lagafrumvörpum í dag sem gæti orðið til þess að loka þurfi starfsemi fjölda ríkisstofnana.Pakkinn átti að fjármagna meira en 75% kostnaðar við rekstur ríkisstjórnarinnar. Það er því nánast ómögulegt að komast hjá því að loka hluta af starfsemi ríkisstjórnarinnar frá og með næsta laugardegi.Reiknað er með að samningaviðræður dragist fram á annað kvöld en falli fjármögnun ríkisins niður gætu hundruð þúsunda opinberra starfsmanna verið sendir í leyfi eða neyddir til að vinna launalaust, sem hefði víðtæk efnahagsleg áhrif.Þetta yrði þá í annað sinn sem fjármögnun til stórra hluta bandarískra ríkisstofnana væri fryst tímabundið síðan Trump tók við embætti fyrir ári síðan. REIÐUBÚNIR AÐ SAMÞYKKJA FIMM FRUMVÖRP AF SEX Demó