Verðbólga eykst úr 4,5% í 5,2%. Hún hefur ekki mælst meiri í að verða eitt og hálft ár. Nýjasta mælingin er verri en allar opinberar spár gerðu ráð fyrir.Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir opinber gjöld skýra aukninguna að mestu leyti. „Það verður að segjast. Þessi frumvörp sem voru samþykkt núna rétt fyrir áramót og tóku gildi um áramótin höfðu þessi áhrif að mestu,“ segir hún.Þá hafi verð á mat og drykk og áfengi hækkað og vísar auk þess í ýmsar gjaldskrárhækkanir. Þyngst vegi mikil hækkun á bílum eða um 13%.Hefðu stjórnvöld ekki átt að sjá þetta fyrir?„Jú, maður myndi halda það. Við vöruðum við þessu þegar í ljós kom að þessi frumvörp voru samþykkt fyrir áramót, að þetta myndi valda því að verðbólga myndi aukast í janúar og það varð svo,“ segir Berþóra.„Það lít