Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum ætlar að halda prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Jarl Sigurgeirsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, segir það hafa verið ákveðið í síðustu viku. Fulltrúaráðið sé að raða saman kjörnefnd og eigi eftir að ákveða kjördag. Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum heldur prófkjör.RÚV / Þorgils Jónsson