Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað komið upp í ræðustól Alþingis til að gagnrýna að frumvarp um veiðistjórn grásleppu sé á dagskrá þingsins. Frumvarpið sé langt í frá tilbúið.Stærstur hluti þingfundar hefur farið í að ræða frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun verndar. Þeirri umræðu er ólokið en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gert reglulegt hlé á umræðunni til að hvetja forseta Alþingis til að taka frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um veiðistjórn grásleppu af dagskrá.Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagði augljóst að Flokkur fólksins með hreðjatak á samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórn. Ríkisstjórnarflokkarnir séu komnir út á tún með strandveiðarnar sem Flokki fólksins var lofað. „Nú á að stinga dúsu upp í Flokk fólksins með því að afgreiða hér á þi