Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, segist sjá sig knúinn til að gefa kost á sér til að leiða lista flokksins í bæjarstjórnarkosningum í vor. Ástæðan er samkomulag sem Heimir Örn Árnason, oddviti flokksins, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, gerðu með sér um skiptingu tveggja efstu sæta á listanum. Frá þessu greinir Akureyri.net. Þar kemur fram að Þórhallur hyggist kæra framkomulag við val á lista til miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og krefjast þess að prófkjör verði haldið. Áður hafði verið ákveðið að raðað yrði í fjögur efstu sæti listans.Þórhallur segir við Akureyri.net að trúnaðarbrestur hafi orðið hjá Sjálfstæðismönnum á Akureyri. Hann segir að röðun á lista hafi verið ákveðin þegar Heimir Örn virtis