Verðbólgan heldur áfram að aukast og er komin í 5,2 prósent. Hún var 4,5 prósent í síðasta mánuði. Verðbólgan hefur ekki verið meiri síðan í september 2024.Aukna verðbólgu má ekki síst rekja til gjaldtöku af bílum.Verðbólgan jókst milli mánaða þrátt fyrir útsölur, lækkandi flugfargjöld og minni útgjöld vegna húsbúnaðar og heimilistækja. Matur og drykkur hækkaði um eitt prósent.Breytt gjaldtaka af bílum höfðu sín áhrif. Bensínverðslækkun skilaði 0,68 prósenta lækkun vísitölunnar og dísil 0,26 prósenta lækkun. Á móti hækkuðu veggjöld um 633 prósent sem hækkaði neysluverðsvísitöluna um 0,99 prósent. Veggjöldin hækkuðu því vísitöluna 0,03 prósentum meira en bensín- og dísilverð lækkaði hana. Bílar hækkuðu um 13,3 prósent í verði og það hækkaði vísitöluna um 0,56 prósent.Verðbólga jókst hressil