Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þakklátur fyrir stuðning Íslands og annarra Norðurlanda

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur segir í samtali við fréttastofu RÚV að stuðningur annarra Norðurlanda, þar á meðal Íslands hafi verið afar mikilvægur síðustu daga og vikur í deilunni við Bandaríkjamenn vegna Grænlands.Rasmussen var á leið inn á fund utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins í Brussel í morgun, þegar fréttamaður RÚV náði tali af honum.„Við höfum metið afar vel þann stuðning sem við höfum fundið fyrir alls staðar að úr heiminum,“ sagði Rasmussen. „Það á við um alla Evrópu, en í Norðurlandaráðinu og þar á meðal frá Íslandi hefur þessi stuðningur verið afar mikilvægur. Við erum öll lítil ríki sem byggjum fullveldi okkar á því að vera í bandalagi og það eru í raun ekki mörg ríki sem geta séð um sínar varnir upp á eigin spýtur. Við getum gert það í kraft
Þakklátur fyrir stuðning Íslands og annarra Norðurlanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta