Alls hafa 39 flug með 2.282 innflytjendum farið frá Saint-Paul alþjóðaflugvellinum í Minneapolis það sem af er janúar. Flugáhugamaður fylgist með og heldur utan um skráningu á fjölda fólksins og flugunum.Þessar upplýsingar eru samkvæmt skráningu sem flugáhugamaðurinn Nick Benson hóf að skrá hjá sér. Benson fylgist iðulega með sjaldgæfum eða óvenjulegum flugvélum sem eiga leið um flugvöllinn. Undanfarið hefur hann fylgst með því þegar liðsmenn ICE — tolla- og innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna flytja burt innflytjendur í handjárnum um borð í flugvélar á vegum innflytjendastofnunarinnar.Benson skráir fjölda fólksins niður, upplýsingar um flugin og áfangastað og deilir upplýsingunum með hreyfingu mótmælenda. Oft eru þetta mörg flug á dag. Til samanburðar segir hann að það hafi aðeins eitt sl