Fimmtán manns létu lífið þegar flugvél hrapaði til jarðar í Kólumbíu í dag. Þeirra á meðal voru Diógenes Quintero Amaya, þingmaður í neðri deild kólumbíska þingsins fyrir héraðið Catatumbo, og Carlos Salcedo sem sóst hefur eftir þingsæti í Kólumbíu.Flugvélin hrapaði nálægt borginni Cucuta sem er nærri landamærum Kólumbíu og Venesúela. Í henni voru þrettán farþegar og tveir áhafnarmeðlimir. Enginn komst lífs af.Flugvélin var á vegum kólumbíska flugfélagsins Satena og af gerðinni Beechcraft 1900. Hún tók af stað frá Cucuta og missti samband við flugturna skömmu áður en hún átti að lenda í Ocana, sem er í stuttri fjarlægð frá Cucuta. Svæðið er fjöllótt og með mjög breytilegu veðurfari. Þar eru stór svæði undir stjórn stærsta skæruliðahópsins í Kólumbíu, the National Liberation Army.Yfirvöld í