Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frekari uppsagnir ekki í kortunum

Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin af móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, bandaríska lyfjafyrirtækinu Amgen sem keypti íslenska félagið árið 2012. Verið sé að endurskipuleggja rannsóknarsvið Amgen á heimsvísu og uppsagnirnar hér á landi séu liður í því.„Það verða breytingar á mjög mörgum rannsóknarstöðvum Amgen víða um heim og þar á meðal á Íslandi. Í rauninni verið að auka fókusinn á ákveðin verkefni og síðan að auka samvinnu á milli rannsóknareininga innan Amgen þannig að þetta tvennt spilar saman og það er mikil áhersla lögð á þessar rannsóknarsamvinnu milli eininga,“ segir Unnur Þorsteinsdóttir, meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. STARFSMÖNNUM FÆKKAR UM TÆPLEGA 25 PRÓSENT 45 manns var sagt upp í morgun. Um 150 starfa hjá fyrirtækinu eftir uppsagnirnar
Frekari uppsagnir ekki í kortunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta