Eva Þorsteinsdóttir ætlar að bjóða sig fram á lista Miðflokksins í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar og hefur hún lagt fram þá ósk við uppstillingarnefnd flokksins.Þetta segir í tilkynningu Evu. Fram kemur að hún hafi sterkar skoðanir á því hvað betur mætti fara innan borgarkerfisins og hvaða málefnum borgin ætti ekki að koma að. Borgin eigi að sinna íbúum og fyrirtækjum innan hennar, og hlusta á þær gagnrýnisraddir.Eva segist hafa nær eingöngu verið heimavinnandi móðir í gegnum tíðina en að auki verið meðeigandi fyrirtækja sem stóðu að uppbyggingu og rekstri í borginni. Þá hefur hún að auki unnið fyrir félagssamtökin SÁÁ.Aðsend