Hamas-samtökin segjast hafa lokið undirbúningi fyrir valdatilfærslu á Gaza til nefndar palestínskra embættismanna. Þetta segir Hazem Qassem talsmaður Hamas í samtali við AFP-fréttastofuna. Öll skjöl séu klár, embættisfærslum lokið og búið sé að skipa í nefndir til að sjá um valdaskiptin.Í nefndinni eru 15 Palestínumenn. Hún er hluti af vopnahléssamkomulagi sem var samþykkt að undirlagi Bandaríkjanna í október. Hún á að sjá um daglega stjórn á Gaza og vinna undir eftirliti friðarráðsins sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna stýrir. Ali Shaath, fyrrverandi ráðherra í palestínsku heimstjórninni, stýrir palestínsku nefndinni.Nefndin kemur ekki til Gaza fyrr en búið er að opna að fullu landamærastöðina í Rafah, sem liggur að Egyptalandi. Qassem segir að það verði að gera í báðar áttir, með ful