Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz lækni tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.Frá þessu segir á vef stjórnarráðsins.Elísabet er læknir að mennt með sérfræðileyfi í lyflækningum, gjörgæslulækningum og bráðalækningum auk þess að vera með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu.Hún hefur um árabil starfað sem yfirlæknir á Landspítala. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið yfirlæknir stjórnsýsludeildar klínískrar þjónustu á Landspítala.Elísabet tekur til starfa 1. febrúar næstkomandi./