Nýju frumvarpi er ætlað að koma skikki á sambúð laxeldis og skipaumferðar og tryggja siglingaöryggi. Helgunarsvæði siglinga verður afmarkað og eldisfyrirtæki fá heimild til að setja upp siglingamerki í stað vita sem ekki henta eldinu. SVÆÐI HELGAÐ SIGLINGUM Árekstrar og óvissa hefur verið í leyfisferli fyrir laxeldi á Austfjörðum. Kaldvík vill hefja eldi í Seyðisfirði þar sem einnig er umferð skemmtiferðaskipa og Norrænu. Þar hefur verið óljóst hver skuli úrskurða um öryggissvæði og hve langt frá siglingaleiðum megi staðsetja sjókvíar.Landhelgisgæslan hvatti til að öryggissvæði í Seyðisfirði yrði 200 metrar en ekki 50 eins og segir í eldisreglugerð til að sjófarendur hafi nægan tíma til að breyta um stefnu eða koma út akkeri. Í áhættumati Kaldvíkur fyrir Seyðisfjörð var eldið ekki tali