Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fiskeldisfyrirtæki hyggjast segja upp fólki til að breyta kjörum

Samningum 34 starfsmanna Arctic Fish verður sagt upp til að hægt sé að breyta á vinnutíma þeirra og kjörum.Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, segir að verið sé að stytta vaktavikuna. Starfsfólk hafi unnið mikla yfirvinnu og því eigi að breyta. Þetta sé eins konar stytting vinnuvikunnar.Segja þarf upp ráðningarsamningum þar sem ekki er heimilt að segja upp vöktum nema að það sé gert. Breytingarnar eru gerðar í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Verkalýðsfélag Vestfjarða, segir Daníel.Spurður hvaða áhrif þetta hafi á heildarlaun starfsmannanna segir Daníel það misjafnt. Yfirvinnustundum fækki en vaktalaun hækki á móti. Hann er sannfærður um að starfsfólk skrifi undir nýja ráðningarsamninga.Samkvæmt heimildum fréttastofu er sams konar breyting til skoðunar hjá Arnarlaxi. Björn Hembr
Fiskeldisfyrirtæki hyggjast segja upp fólki til að breyta kjörum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta