Birta lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður Verzlunarmanna hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður þar sem metinn verður grundvöllur fyrir samruna sjóðanna. Þá verði einnig athugað hvort tímabært sé að hefja formlegar samrunaviðræður. Í tilkynningu frá sjóðunum segir að skoðað verði hvort sameiningin sé til þess fallin að efla starfsemi sjóðanna enn frekar meðal annars með auknu rekstrarhagræði, sterkari innviðum og bættri þjónustu við sjóðfélaga. Höfuðstöðvar Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna eru í Húsi verslunnar.RÚV