Magnús Davíð Norðdahl hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum.Hann hefur setið í borgarstjórn fyrir Pírata.Magnús segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hann ætli að segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi. „Þá mun ég á því tímamarki segja skilið við þátttöku í skipulögðu stjórnmálastarfi og þar með einnig samtökum Pírata,“ segir í færslu Magnúsar.Píratar voru hluti af viðræðum um sameiginlegt framboð Vor til vinstri en nú er ljóst að Píratar munu bjóða fram sinn eigin lista, eins og áður. ALEXANDRA BRIEM SÚ EINA SEM HEFUR TILKYNNT AÐ HÚN GEFI KOST Á SÉR Alexandra Briem, oddviti Pírata í borgarstjórn, segir í samtali við fréttastofu að það sé mikill missir að Magnúsi.Píratar héldu félagsfund á laugardag þar sem ákveðið var að halda prófkj