Hagsmunaðilar í laxveiði á Íslandi gagnrýna frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi á þeim forsendum að verið sé að draga tennurnar úr sambærilegu frumvarpi sem lagt var fram á síðasta kjörtímabili. Þeir telja að búið sé færa of mikil völd um ákvarðanir um sjókvíaeldi í fjörðum landsins frá opinberum stofnunum eins og Hafrannsóknarstofnun og til ráðherra. Þá gagnrýna þeir að búið sé að minnka viðurlög við slysasleppingum í sjókvíaeldi verulega.Verndarsjóður villtra íslenskra laxastofna hefur skilað inn umsögn um frumvarpið. Elvar Friðriksson segir um gagnrýnina sjóðsins. „Frumvarpið í heild sinni er ótrúlega hliðhollt iðnaðinum og í rauninni til höfuðs náttúru villtra laxastofna. Það er verið að leggja til að gefa út auðlindina í formi kvótakerfis.“Elvar gagnrýnir að búið sé að minnka og