Fréttamenn ítalska ríkissjónvarpsins, RAI, urðu fyrir hótunum af hálfu ICE-liða þegar þeir fylgdust með störfum þeirra í Minneapolis á laugardag. Hótunin náðist á myndskeið.Fréttamennirnir höfðu verið að fylgjast með tveimur bílum á vegum ICE. ICE-liðarnir lokuðu bíl fréttamannanna milli þessara tveggja bíla í þröngri götu. Tveir ICE-liðar komu að bílnum. Fréttamennirnir neituðu að skrúfa rúðuna niður, ítrekuðu að þeir ynnu hjá fjölmiðli og sögðust ekki hafa gert neitt rangt. ICE-liðarnir hótuðu því að ef fréttamennirnir héldu áfram að elta þá myndu þeir brjóta rúðu bílsins og fjarlægja fréttamennina úr honum.Þetta gerðist sama dag og Alex Pretti var skotinn til bana af ICE-liðum í Minneapolis.