Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar hefur ákveðið að þiggja 2. sætið á lista flokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Heiða laut í lægra haldi fyrir Pétri Marteinssyni um oddvitasætið í prófkjöri flokksins á laugardaginn.Þetta tilkynnir Heiða í færslu á facebook þar sem hún segir að á þennan hátt geti hún best unnið hugsjónum sínum mest gagn. Hún muni áfram gegna skyldum sínum sem borgarstjóri.Facebookfærsla Heiðu í heild:„Ég vil þakka öllum þeim studdu mig í forvali Samfylkingarinnar um liðna helgi. Ennfremur vil ég þakka, frá mínum dýpstu hjartarótum, þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem störfuðu með mér í aðdraganda forvalsins.Þó að niðurstaðan hafi verið mér vonbrigði þá finn ég til mikils þakklætis fyrir allan stuðninginn, ótelja