Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stór hluti hlutafjáraukningar Eyjaganga tryggður og greiddur

Hlutafjáraukning félagsins Eyjaganga ehf. er langt komin. Það hefur þegar tryggt umtalsverðan hluta tvö hundruð milljón króna markmiðs síns. Frá þessu er greint á vefnum tigull.is.Lykilfjárfestar hafa þegar greitt sinn hlut, þar á meðal Íslandsbanki, en aðkoma hans þykir gæðastimpill á verkefnið.Félagið var stofnað fyrir tveimur mánuðum, það undirbýr gerð um átján kílómetra langra jarðganga úr Landeyjum til Vestmannaeyja og hyggst hefja rannsóknarboranir þegar í mars.Vestmannaeyjabær hefur einnig greitt sína hlutdeild svo og Rangárþing eystra ásamt Ísfélaginu í Vestmannaeyjum og Vinnslustöðinni auk aðaleigenda Laxeyjar.Það að hlutafé sé þegar greitt segir Árni Sigfússon, formaður Eyjaganga, sýna mikla trú á verkefninu og sendi atvinnulífinu sterk skilaboð. Viðræður við væntanlega fjárfesta
Stór hluti hlutafjáraukningar Eyjaganga tryggður og greiddur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta