Neðri deild franska þingsins samþykkti í nótt lagafrumvarp sem bannar börnum undir fimmtán ára aldri að nota samfélagsmiðla. Atkvæði féllu 130 gegn 21 eftir ítarlegar umræður sem stóðu allan gærdag og fram á nótt. Frumvarpið fer nú til öldungadeildar þingsins sem gæti afgreitt það fyrir miðjan febrúar að sögn Gabriels Attal, fyrrverandi forsætisráðherra. Emmanuel Macron forseta er mjög í mun að frumvarpið verði að lögum og segir markmiðið að koma í veg fyrir að börn verji of miklum tíma í snjalltækjum. Macron sagði í færslu á X að stórt skref til varnar börnum og unglingum hefði verið stigið í nótt. Samþykki öldungadeildin frumvarpið, sem bannar einnig farsímanotkun í framhaldsskólum, verður Frakkland annað ríki heims til að banna samfélagsmiðlanotkun barna á eftir Ástralíu. Þar er aldurst