Lárus Bl. Sigurðsson, stjórnmálafræðingur, gefur kost á sér á lista Miðflokksins í Reykjavík. Hann segist í tilkynningu hafa tilkynnt uppstillingarnefnd það en kveðst ekki gera kröfu um ákveðið sæti á lista flokksins.Lárus Bl. Sigurðsson.Aðsent/Lárus Bl. Sigurðsson / Lárus Bl. SigurðssonLárus segist hafa mikinn áhuga á stjórnmálum þótt bein þátttaka hans hafi verið takmörkuð. Hann hafi reynslu úr fjármálageiranum og tengist íþróttahreyfingunni.Lárus segir brýnt að forgangsraða verkefnum borgarinnar í samræmi við þarfir íbúa auk þess sem einfalda þurfi og endurskoða skipulagsmál, sem séu í óefni. Jafnframt segir Lárus brýnt að tryggja rekstrarumhverfi íþróttafélaga í borginni til að sinna börnum og unglingum.