Ótilgreindur fjöldi alríkislögreglufulltrúa yfirgefur Minneapolis-borg í Bandaríkjunum, þeir fyrstu í dag, þriðjudag. Þetta segir borgarstjórinn Jacob Frey eftir samtal við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Mikil ólga hefur verið í borginni eftir að alríkisfulltrúar skutu Alex Pretti til bana á laugardag og Renee Nicole Good fyrr í mánuðinum. Fulltrúarnir hafa farið mikið í aðgerðum gegn meintum ólöglegum innflytjendum í borginni samkvæmt stefnu forsetans. Frey segir í færslu á X að hann haldi áfram að þrýsta á að allir hverfi á brott úr borginni. Fyrr í dag hafði hann eftir Trump að núverandi ástand gæti ekki varað áfram. Trump segist í færslu á Truth Social hafa átt uppbyggilegt og árangursríkt samtal við Frey. Hann sagði jafnframt að Tom Homan, fulltrúi hans, muni ræða við borgarstjórann